Hér er smá tips fyrir þá sem finnst gott að liggja berrassaðir á skiptiborði.
Skref 1: Kukaðu smávegis í bleyjuna svo foreldri eða forráðamáður verði vitni að.
Skref 2: Eftir að foreldri eða forráðamaður hefur skipt um bleyju lætur þú stóru sprengjuna í nýju bleyjuna.
Niðurstaða: Tvær ferðir á skiptiborðið á stuttum tíma.
Athugið að nota þessa aðferð í hófi, við ofnotkun verður biðtími sprengju-til-skiptiborðs lengri vegna skiptileti foreldra eða forráðamanna.
14. janúar 2009
29. desember 2008
Sonu
Jæja, mér hefur fæðst sonu. Hann fékk vinnuheitið Ramses í móðurkviði og heldur því enn um sinn.
Ramses fæddist klukkan 02:00 þann 21. desember 2008, kennitala hans er því 211208-xxxx. Töff. Hann vó 3350 kg. og var 51,5 cm. langur.
16. desember 2008
Engar fréttir eru ekkifréttir
Það er ekkert barn komið og virðist ekkert ætla að koma. Á meðan við bíðum er farið í verslanir og leitað að jólagjöfum sem virðast finnast bæði seint og illa. Til marks um mikið búðarráð má nefna að heimsóknir mínar í Hagkaup eru komnar á annan tuginn. Aldrei hef ég farið jafn oft á jafn skömmum tíma í sömu búðina. Það þori ég að fullyrða.
Um síðustu helgi ákváðum við Alma að gera eitthvað tvö saman og lögðumst niður með ælupest, ég á föstudagskvöld og Alma svo á laugardagsmorgun. Það gerir heimilislífinu svo gott að eiga svona stundir saman. Þess má geta að ég er skemmtilegur undir venjulegum kringumstæðum en þegar ég slappur er tvöfaldast skemmtilegheitin í réttum hlutföllum við veikindin.
Jæja, ég set kannski inn fréttir af barnsburði á næstunni. Annars er það ekkert víst.

17. nóvember 2008
RVK Cribs
Bloggið hefur verið í lægð að undanförnu. Bloggið hefur ávallt verið tengt gengisvísitölu íslensku Krónunnar og er því, eðlilega, ekki uppá sitt besta akkúrat núna.
Margt hefur á daga mína drifið að undanförnu. Í vinnunni var ég sakaður um að setja mann á hausinn, en sá hinn sami reiddist þegar ég neitaði að millifæra yfir á hann fjórar milljónir sem hann átti inni hjá „ríkinu“ eftir girðingavinnu í sumar. Ég get verið mjög kaldrifjaður í vinnunni.
Þá er jólaundirbúningur í fullum gangi á þessu heimili enda má gera ráð fyrir að desember fari í annað en jólabakstur og verslunarferðir. Því eru einhverjir svo heppnir að fá frá mér jólagjafir af kreppuútsölum, sorrý. Annars er það hugurinn sem gildir.
Brátt fer erfingjaundirbúningur að ná hæstu hæðum. Í gær setti ég saman barnarúm og á dagskránni á næstunni er að koma því fyrir inni í svefnherbergi með tilheyrandi raski á fyrri uppröðun. Hugsanlegt er að sjónvarpi nr. 2 verði fórnað. Það sem maður leggur á sig.
Í lokin skal taka fram að samfélagsrýni um umræður liðinna mánaða, stöðu íslensks samfélags í alþjóðlegu samhengi og hvernig íslenskum efnahag á eftir að ríða af til langs tíma má ekki vænta frá mér á næstunni. Sjáumst seinna.

7. október 2008
Rússland
Ég tel það augljóst að láni frá Rússlandi fylgi meira en bara mánaðarleg greiðslubyrgði. Augljós pólitískur þrýstingur fylgir og velvild austureftir blasir við svo ekki sé minnst á áskrift af 12 stigum Íslands í júróvísjón.
4. október 2008
Eymd og volæði
Aldur er afstæður segja sumir á meðan aðrir halda því fram að ekkert líf sé eftir 25 ára aldurinn. Ég hef alltaf verið meira á því að hið fyrrnefnda væri rétt en eftir afmælið mitt þann 1. október sl., er ég varð 26 ára, er ég þess fullviss að lífið eigi nú eftir að verð eymd og volæði eitt.
Það er ýmislegt sem ég hef til að rökstyðja mál mitt. T.d var ég að vinna 12 tíma á afmælisdaginn, daginn eftir brast á snemmbúinn vetur með kulda, snjó og hálku, krónan hefur veikst og gengi erlendra gjaldmiðla hefur flogið upp og skollið hefur á kreppa.
Allt þetta tengi ég við afmælisdag minn, þá má fastlega gera ráð fyrir því að góðæri fyrri ári hafi einnig tengst aldri mínum og þeim hápunkti sem það var að ná, en nú er allt búið ég er orðinn 26 sumarið búið og hagkerfið að hrinja. Sorrý, við áttum í það minnsta 25 góð ár saman.

30. september 2008
26. september 2008
9. september 2008
7. september 2008
Kapítalismi

Svona fyrir þá sem búsettir eru á höfuðborgars(v)æðinu og komust ekki í berjamó þetta haustið, þá er hægt að kaupa krækiber í Melabúðinni. Ég komst að þessu í kvöld og fjárfesti í einum dalli. Stefni á að mæta berjablár til vinnu á morgun.
Subscribe to:
Posts (Atom)